Erlent

Úkraínuþing leyst upp og boðað til kosninga

Petro Porosjenkó Úkraínuforseti hyggst hitta Pútín Rússlandsforseta í dag.
Petro Porosjenkó Úkraínuforseti hyggst hitta Pútín Rússlandsforseta í dag. Vísir/AP
Petró Porosjenkó Úkraínuforseti leysti í gær upp þjóðþing landsins og boðaði til kosninga, sem haldnar verða 26. október.

Hann segir þetta gert í samræmi við stjórnarskrá landsins, enda hafi ríkisstjórnarmeirihlutinn fallið fyrir nokkrum vikum.

Þá sagði hann marga þingmenn vera stuðningsmenn vopnaðra uppreisnarmanna í austurhluta landsins. Porosjenkó hyggst í dag eiga fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×