Erlent

Úkraínumenn bjóða Hollendingum að stjórna rannsókn

Heimir Már Pétursson skrifar
Í dag eru fjórir sólarhringar liðnir frá því flugvél Malaysian flugfélagsins var skotin niður án þess að formleg rannsókna hafi farið fram. Uppreisnarmenn meina rannsakendum fullan aðgang.
Í dag eru fjórir sólarhringar liðnir frá því flugvél Malaysian flugfélagsins var skotin niður án þess að formleg rannsókna hafi farið fram. Uppreisnarmenn meina rannsakendum fullan aðgang. vísir/afp
Forsætisráðherra Úkraínu hefur boðið Hollendingum að taka yfir rannsókn á hrapi malaísku flugvélarinnar sem skotin var niður yfir austurhluta Úkraínu á fimmtudag. Rússneskur hernaðarsérfræðingur segir úkraínska stjórnarherinn hafa skotið flugvélina niður fyrir mistök á æfingu.

Seinnipartinn í dag eru liðnir fjórir sólarhringar frá því MH 17 flugvél Malaysia flugfélagsins var skotinn niður í Donetsk héraði í Úkraínu án þess að eignleg rannsókn á atburðinum hafi átt sér stað á vettvangi. Vopnaðir uppreisnarmenn í héraðinu umkringja brakið og líkamsleifar farþega og áhafnar og á meðan getur vettvangurinn spillst.

Langflestir þeirra sem fórust með flugvélinni voru Hollendingar, eða 193 af 298 manns um borð.

Arseniy Yatsenyuk forsætisráðherra Úkraínu segir uppreisnarmenn enn koma í veg fyrir að rannsóknarteymi úkraínskra flugmálayfirvalda geti athafnað sig á svæðinu. Á blaðamannafundi í dag sagði hann stjórnvöld í Úkraínu reiðubúin að fela Hollendingum að leiða og skipuleggja rannsókn á vettvangi, enda hefðu þeir misst flesta þegna þegar flugvélin var skotinn niður. Þá sagði hann útilokað „að drukknir uppreisnarmenn“ hefðu getað ráðið við það tæknilega að skjóta háþróðari eldflaug á flugvélina. Til þess þurfi þjálfaða menn og stjórnvöld hefðu upplýsingar sem staðfestu að þjálfunin hefði átt sér stað í Rússlandi, verið fjármögnuð af Rússum, sem einnig hefðu útvegað flaugarnar.

Yatsenyuk sagði að úkraínsk stjórnvöld myndu draga alla þá sem bæru ábyrgð á því að granda þotunni til ábyrgðar. Þar með það land sem á bakvið tjöldin útvegaði uppreisnarmönnum ólögleg vopn og fjárhagslegan stuðning, þjálfaði þá og skipuleggði jafnvel viðbjóðslegan glæp sem þennan.

Rússar þvertaka hins vegar fyrir að hafa átt nokkra aðild að því að flugvélin var skotin niður. Konstantin Sivkov, sem er forseti Háskóla um landfræðilega pólitísk úrlausnarefni í Rússlandi, fullyrðir að úkraínskir hermenn hafi verið að æfa flugskeytaárás og skotið flugvélina niður fyrir mistök. Uppreisnarmenn hafi ekki vopnakerfi sem dragi tíu kílómetra í loft upp, aðeins flaugar sem dragi um þrjá og hálfan kílómetra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×