Fótbolti

Úkraína upp fyrir Ísland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Artem Kravets potar boltanum í netið.
Artem Kravets potar boltanum í netið. Vísir/Epa
Úkraínumenn komust upp fyrir Íslendinga í I-riðli undankeppni HM 2018 eftir 1-0 sigur á Finnum á heimavelli í kvöld.

Úkraínumenn þurftu að hafa mikið fyrir sigrinum í Odessa í kvöld en Finnar fengu sín færi í leiknum.

Artem Kravets skoraði eina mark leiksins á 24. mínútu eftir frábæran undirbúning Yevhens Konoplyanka.

Úkraína er nú í 2. sæti riðilsins með átta stig, einu stigi á undan Íslandi sem tapaði fyrir Króatíu fyrr í dag.

Finnar eru með sitt eina stig í 5. sæti riðilsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×