Sport

UFC hefur beðið eftir Conor McGregor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor McGregor.
Conor McGregor. Vísir/Getty
Stjarna kvöldsins í Las Vegas þann 11. júlí er hinn óviðjafnanlegi Íri Conor McGregor.

Hann er búinn að gera allt vitlaust í UFC-heiminum með því að rífa kjaft við allt og alla og standa síðan við stóru orðin. Fólk annaðhvort elskar hinn gífuryrta McGregor eða elskar að hata hann. Hvað svo sem því líður vilja allir horfa á hann.

McGregor er kominn í titilbardaga þar sem hann mun berjast við brasilíska heimsmeistarann Jose Aldo.

UFC fór í stóra auglýsingaherferð um allan heim til þess að auglýsa kvöldið og er heldur betur til í að veðja á Írann kjaftfora og skemmtilega.

„Þessi auglýsingaherferð var frekar klikkuð. Conor naut sín í botn en ég er ekki viss um að Aldo hafi fundist eins gaman,“ segir John Kavanagh, þjálfari McGregors, og hlær dátt en eins og sjá mátti í þáttum um herferðina þá tókst McGregor að fara verulega í taugarnar á Aldo og ekki síst er hann stal af honum beltinu í Dublin. Conor segist eiga beltið.

„Það þarf engan snilling til þess að sjá af hverju forkólfar UFC eru hrifnir af Conor. Hann er auðvitað mjög góður í að tala sem og að berjast. Hin fullkomna blanda sem UFC hefur beðið eftir.“

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar keppir um titil innan árs

Maðurinn á bak við velgengni Gunnars Nelson og Conors McGregor í UFC-heiminum, John Kavanagh, er ekki hissa á uppgangi lærisveina sinna. Kavanagh segir að Gunnar muni slá í gegn í Bandaríkjunum og byrji á því strax í júlí er hann mætir John Hathaway.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×