Sport

UFC hafði ekki leyfi til að aflýsa bardaga Jones og Cormier

Dana White stígur hér á milli Jones og Cormier.
Dana White stígur hér á milli Jones og Cormier. vísir/getty
UFC hefur verið mikið gagnrýnt fyrir að leyfa Jon Jones að keppa um síðustu helgi þó svo hann hefði fallið á lyfjaprófi.

Jones, sem er besti bardagakappinn í UFC pund fyrir pund, mældist með leifar af efni sem er í kókaíni. Niðurstaða prófsins lá fyrir á Þorláksmessu en bardaginn fór samt fram 3. janúar.

Í vikunni var svo loksins greint frá niðurstöðum prófsins og í leiðinni tilkynnt að Jones væri farinn í meðferð. Hann vann annars sannfærandi sigur á Daniel Cormier í bardaganum.

Sjá einnig: Jon Jones féll á lyfjaprófi

Efnið sem fannst í líkama Jones er ekki á bannlista UFC og forseti UFC, Dana White, sá enga ástæðu til þess að blása bardagann af.

„Ég íhugaði það aldrei. Í fyrsta lagi var Jones heill heilsu og svo mældust ekki í honum efni sem gera hann sterkari," sagði White en hann hafði ekki leyfi til þess að aflýsa bardaganum.

„Fólk verður að skilja að Jones var með samning um að berjast. Það halda allir að við getum bara blásið bardagann af en það er ekki rétt. Jones hafði fullan rétt á því að berjast."

Sjá einnig: Bardagi Jones og Cormier

White sagði einnig að Cormier hafði ekki vitneskju um lyfjapróf Jones fyrir bardagann.

„Hann þurfti ekkert að vita það. Ef Jones hefði aftur á móti verið tekinn fyrir steranotkun þá hefðum við flautað bardagann af."

MMA

Tengdar fréttir

Vill fleiri lyfjapróf í UFC

Sænski bardagakappinn Alexander Gustafsson vill sjá UFC beita sér fyrir því að fleiri í íþróttinni þurfi að gangast undir lyfjapróf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×