Sport

UFC 202: Rick Story mætir Donald Cerrone í kvöld

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Ekki mikill rígur á milli Story og Cerrone.
Ekki mikill rígur á milli Story og Cerrone. Vísir/Getty
Eins og flestum bardagaáhugamönnum er kunnugt um berst Conor McGregor við Nate Diaz í kvöld. Það má þó ekki gleyma því að fyrr um kvöldið eru margir frábærir bardagar sem fólk má ekki missa af.

Bardagi Conor McGregor og Nate Diaz er auðvitað aðalbardaginn á UFC 202.  Gríðarleg tilhlökkun ríkir meðal bardagaáhugamanna fyrir kvöldinu enda stefnir allt í taumlausa skemmtun.

Í næstsíðasta bardaga kvöldsins mætast þeir Anthony Johnson og Glover Teixeira. Sigurvegarinn mun að öllum líkindum fá næsta titilbardaga í léttþungavigtinni. Báðir eru þeir frábærir bardagamenn sem gætu valdið núverandi meistara, Daniel Cormier, vandræðum.

Anthony Johnson er mikill rotari og hefur sigrað 15 bardaga eftir rothögg en 11 af þeim sigrum hafa komið í fyrstu lotu. Sigurlíkur Glover Teixeira stóraukast því ef honum tekst að lifa af fyrstu lotuna.

Anthony Johnson fékk tækifæri á titlinum í maí en mátti sætta sig við tap gegn Cormier. Hann var nálægt því að klára Cormier í fyrstu lotu en þreyttist fljótt og var í miklum vandræðum í næstu lotum þar til Cormier kláraði hann með uppgjafartaki.

Glover Teixeira er svart belti í brasilísku jiu-jitsu og er ansi lunkinn í gólfinu. Hann er þó bara með sjö sigra eftir uppgjafartök en er að sama skapi með 15 sigra eftir rothögg rétt eins og Johnson. Þó Teixeira líti út eins og vondi kallinn í James Bond er hann ljúfur sem lamb utan búrsins og finnst fátt skemmtilegra en grænmetisræktun sín. Þessi viðureign ætti því að verða virkilega spennandi milli tveggja frábærra bardagamanna.

Þriðji síðasti bardagi kvöldsins er einnig afar áhugaverður. Þar mætast gamli Íslandsóvinurinn Rick Story og kúrekinn Donald Cerrone. Story hefur barist aðeins einn bardaga síðan hann sigraði Gunnar Nelson í október 2014. Eftir sigur á Tarec Saffiedine í maí virðist hann vera kominn á fullt skrið eftir erfið meiðsli undanfarin ár.

Donald Cerrone er einn allra skemmtilegasti karakterinn í MMA heiminum. Hann vill berjast sem oftast og hefur gaman af því að fara í kappakstur, klettaklifur og sjóbretti svo fátt eitt sé nefnt aðeins nokkrum dögum fyrir bardaga. Nokkuð sem UFC er alls ekki ánægt með.

Hann er líka hrikalega skemmtilegur bardagamaður en af 30 sigrum hans hafa 16 komið eftir uppgjafartök og sex eftir rothögg. Það er því engin tilviljun að hann er einn vinsælasti bardagamaðurinn í UFC.

Þetta ætti að verða mjög skemmtilegur bardaga í veltivigtinni en Gunnar Nelson telur að sinn gamli andstæðingur, Rick Story, fari með sigur af hólmi.

UFC 202 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í nótt og hefst útsendingin kl. 2. Fimm bardagar verða á dagskrá í kvöld og er þetta kvöld sem enginn alvöru bardagaaðdáandi má missa af.

MMA

Tengdar fréttir

Conor getur ekki hætt að æfa

Í nýjasta þættinum af Embedded er fylgst með Conor McGregor á heimili sínu í Las Vegas þar sem aldrei er róleg stund.

Conor og Diaz munu fá háar sektir

Bardagakapparnir Conor McGregor og Nate Diaz munu fá grimma refsingu fyrir hegðun sína á blaðamannafundinum á miðvikudag. Hegðun þeirra er litin mjög alvarlegum augum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×