Sport

UFC 178: Er Alvarez einn besti léttvigtarmaður heims?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Donald Cerrone og Eddie Alvarez mætast í næst síðasta bardaga UFC 178.
Donald Cerrone og Eddie Alvarez mætast í næst síðasta bardaga UFC 178. Vísir/Getty
Árum saman hefur Eddie Alvarez verið talinn einn besti léttvigtarmaður heims. Hann hefur þó aldrei barist í UFC en á því verður breyting á um helgina. Alvarez mætir Donald Cerrone á UFC 178 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Eddie Alvarez var léttvigtarmeistari Bellator bardagasamtakanna og var af mörgum talinn einn besti léttvigtarmaður heims. Bellator er nú um mundir næst stærstu bardagasamtök heims (langt) á eftir UFC.

Ekki voru allir sammála um að Alvarez væri eins góður og menn héldu þar sem hann hafði ekki barist við mörg stór nöfn. Lang flestir af bestu bardagamönnum heims berjast í UFC og því ekki um marga verðuga andstæðinga að ræða fyrir Alvarez.

Af þeim sökum kaus hann að framlengja ekki samning sinn við Bellator og fékk samningstilboð frá UFC árið 2012. Vandamálið var að Bellator hafði svo kallaðan jöfnunarrétt (e. matching rights) við öll tilboð sem Alvarez bauðst og því neyddist hann til að endursemja við Bellator. Málið var ljótt og leiðinlegt og fór fyrir dómstóla en nánar má lesa um það á vef MMA Frétta hér.

Eftir að nýr forseti tók við Bellator var Alvarez leyft að róa á önnur mið og var UFC ekki lengi að semja við hann. Fyrsti bardagi hans verður um helgina gegn hinum þrælskemmtilega og villta Donald Cerrone. Nú þegar Alvarez er kominn í UFC fær hann tækifæri til að sanna að hann sé einn besti léttvigtarmaður heims.

Alvarez er góður boxari og hefur sigrað 14 bardaga eftir rothögg. Þrátt fyrir að vera góður boxari er hann nánast alltaf kýldur niður á fyrstu mínútum bardagans en er iðulega fljótur að jafna sig. Donald Cerrone er góður sparkboxari en þrátt fyrir það hafa 15 af 24 sigrum hans komið eftir uppgjafartök. Cerrone á það til að kýla eða sparka andstæðinga sína niður og klára þá svo með uppgjafartökum í gólfinu á meðan þeir eru enn vankaðir.

Cerrone hefur fengið frammistöðubónus (rothögg eða uppgjafartak kvöldsins) í síðustu fjórum bardögum sínum og eru miklar líkar á að bardagi morgundagsins verði besti bardagi kvöldsins (e. Fight of the night). Báðir bardagamenn mæta til að klára andstæðinga sína en ekki til að sigra á stigum og þegar tveir slíkir bardagamenn koma saman er von á flugeldasýningu í búrinu!

UFC 178 bardagakvöldið hefst kl 2 aðfaranótt sunnudags á Stöð 2 Sport. Bardagar kvöldsins eru:

Titilbardagi í fluguvigt - Demetrious Johnson gegn Chris Cariaso

Léttvigt: Donald Cerrone gegn Eddie Alvarez

Fjaðurvigt: Conor McGregor gegn Dustin Poirier

Millivigt: Tim Kennedy gegn Yoel Romero

Bantamvigt kvenna: Cat Zingano gegn Amanda Nunes

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×