Fótbolti

UEFA pressar á að forsetakosningum FIFA verði frestað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sepp Blatter.
Sepp Blatter.
Forsetakosningar FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, eru enn á dagskrá þrátt fyrir atburði gærdagsins og það stefnir því allt í að valdatíð Sepp Blatter lengist um fjögur ár.

UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, mun hinsvegar pressa á það að forsetakosningum verði frestað en fulltrúar evrópsku sambandanna munu hittast í dag og þar á meðal verður Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.

Sepp Blatter sækist eftir endurkjöri fimmta kjörtímabilið í röð en hann hefur verið forseti FIFA frá því í júní 1998. Það er svart ský yfir FIFA því nú eru menn komnir með áþreifanlegar sannanir fyrir gríðarlegri spillingu meðal æðstu manna fótboltaheimsins.

Blatter var búinn að gefa það út að þetta yrði hans síðasta kjörtímabil en hætti síðan við það og sóttist eftir fimmta kjörtímabilinu. Það var ekki vinsælt meðal Evrópuþjóðanna og fréttir gærdagsins hafa síðan hrist enn frekar upp í mönnum.

Háttsettir stjórnarmenn FIFA voru þá handtektir á hóteli í Zürich í Sviss þar sem ársþing FIFA fer fram á föstudaginn. Mennirnir eru sakaðir um spillingu; peningaþvætti og mútustarfsemi.

„Þessir atburðir sýna einu sinni sem oftar að spilling hefur djúpar rætur innan FIFA," sagði meðal annars í yfirlýsingu frá UEFA.

Jórdanski prinsinn Ali bin al-Hussein er sá eini sem býður sig fram á móti Sepp Blatter og fyrir atburðina í gær bjóst enginn við öðru en að Blatter fagnaði öruggum sigri.

Hvort að Knattspyrnusambandi Evrópu takist að fá forsetakosningunum frestað er ólíklegt en Ársþing FIFA á að hefjast á morgun.

Sepp Blatter bregður ekki útaf vananum og hefur þegar fordæmt þessa "spilltu" FIFA-menn og reynt enn á ný að hreinsa sig af öllum ásökunum um spillingu í sínu starfi sem forseti FIFA.


Tengdar fréttir

Geir um handtökurnar: Mikið áfall fyrir knattspyrnuhreyfinguna

„Á þessari stundu veit ég ekkert meira en það sem hefur komið fram í fjölmiðlum,“ sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, í samtali við Guðjón Guðmundsson, aðspurður um handtökur á sjö hátt settum stjórnarmönnum FIFA í nótt. Mennirnir sem um ræðir voru ákærðir í Bandaríkjunum en þeir eru sakaðir um spillingu; peningaþvætti og mútustarfsemi.

Forsetakjör FIFA fer fram

Walter De Gregorio, fjölmiðlafulltrúi FIFA, segir líklegt að kosningarnar til forseta sambandsins fari fram á föstudaginn þrátt fyrir aðgerðir svissnesku lögreglunnar í nótt, þar sem sex háttsettir stjórnarmenn FIFA voru handteknir í Zürich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×