Fótbolti

U-21 árs liðið fékk skell í Rúmeníu

Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska liðsins.
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska liðsins.
Íslenska U-21 árs landsliðið sótti ekki gull í greipar Rúmena í kvöld.

Liðin mættust þá í vináttulandsleik ytra. Rúmenar sterkari og unnu sannfærandi 3-0 sigur.

Engu að síður gott fyrir liðið að fá leik enda fullt af nýjum andlitum í liðinu að þessu sinni.

Byrjunarliðið í kvöld:

Markvörður: Rúnar Alex Rúnarsson

Hægri bakvörður: Adam Örn Arnarsson

Vinstri bakvörður: Daníel Leó Grétarsson

Miðverðir: Orri Sigurður Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson

Tengiliðir: Oliver Sigurjónsson og Gunnar Þorsteinsson

Hægri kantur: Elías Már Ómarsson

Vinstri kantur: Aron Elís Þrándarson

Framherjar: Kristján Flóki Finnbogason og Árni Vilhjálmsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×