Fótbolti

Tyrkland náði aðeins jafntefli gegn Lettlandi

Tyrkneska landsliðið.
Tyrkneska landsliðið. Vísir/Getty
Tyrkland náði aðeins jafntefli gegn  Lettlandi á heimavelli í kvöld en jöfnunarmark Lettlands kom í uppbótartíma. Tyrkland situr því áfram í 4. sæti riðilsins eftir leiki kvöldsins þegar þrjár umferðir eru eftir.

Leikmenn Tyrklands vissu fyrir leikinn að allt annað en sigur í kvöld þýddi að sæti á EM næsta sumar væri fjarlægur draumur. Var því veruleg pressa á Tyrkjum eftir að hafa aðeins náð í jafntefli í Lettlandi.

Heimamenn í Tyrklandi voru mun betri aðilinn í leiknum en þeim tókst ekki að koma boltanum í netið fyrr en rétt undir lok leiksins þegar Selcuk Inan skoraði eftir góðan undirbúning Arda Turan.

Lettland náði að jafna metin þegar Valerijs Sabala stýrði boltanum í netið á 93. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×