Glamour

Tyra Banks mun kenna við Stanford háskólann

Ritstjórn skrifar
Tyra er algjör sérfræðingur í persónulegri markaðssetningu.
Tyra er algjör sérfræðingur í persónulegri markaðssetningu. Mynd/Getty
Bandaríska ofurfyrirsætan Tyra Banks kemur til með að kenna kúrs í M.B.A námi við Stanford háskólann. Stanford er einn virtasti háskóli Bandaríkjanna. Áfanginn sem Tyra mun kenna sem gestakennari fjallar um persónulega markaðssetningu, eða hvernig fólk getur komið sjálfu sér á framfæri með því að markaðssetja sig á ákveðinn hátt. 

Tyra hefur kennt ýmissa grasa eftir að hún hætti að sitja fyrir fyrir nokkrum árum. Hún hefur verið þáttastjórnandi í raunveruleikaþáttunum Americas Next Top Model ásamt því að vera með sinn eigin spjallþátt. 

Hún sagði í viðtali við Wall Street Journal að þrátt fyrir að námsefni áfangans sé skemmtilegt þá komist nemendur ekki upp með nein skrípalæti. Hún ætli alfarið að banna farsíma í tímum hjá sér nema ef fólk vilji tísta einhverjum viskumolum sem hún segir. 

Tyra slæst í hóp með stjörnum á borð við Oprah, Angelinu Jolie og LL Cool J sem munu einnig kenna við virta háskóla næsta skólaárið. 


Tengdar fréttir






×