Heilsa

Typpi í öllum sínum stærðum og gerðum

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Menn pæla í typpum, það er staðreynd. Kannski réttara að segja að þeir pæla mest í sínu eigin typpi og bera það svo saman við typpin í nærumhverfinu. Oftar en ekki eru það ekki strákarnir í sturtu sem eru í samanburðarhlutverki heldur karlarnir á skjánum.

(Kannski rétt að bæta því við að eini raunhæfi samanburður lima er í fullri reisn og svo segir mér hugur um að það sé óvinsælt meðal gagnkynhneigðra karla að mönnum rísi hold í almenningssturtuklefum.)

Mennirnir á skjánum eru þessir með þennan risastóra. Meðallengd lims er um 13 sentímetrar á meðalmanni en typpastærð klámleikara er 24 sentímetrar.

Smá stærðarmunur.

Það er einmitt þetta með stærðina sem veldur einstaklingum hugarangri. Sérstaklega ef hann er talinn of lítill. Þá komum við að því, hvað er lítið? Ef samanburðurinn er óraunhæfur, hver er þá mælistikan?

Svo eru konur spurðar hvort ekki sé betra að hafa meira frekar en minna. Þá vandast málið því líkamsímynd, sjálfstraust og kynferðisleg frammistaða hangir á sömu spýtunni. Ef þú ert með minnimáttarkennd yfir litlum lim þá hefur það áhrif á líkamsímynd þína sem svo hefur neikvæð áhrif á frammistöðu í bólinu. Það er eiginlega ekki hægt að vinna.

Stór limur er talinn merki um karlmennsku, einhvers konar úberman, þar sem samasemmerki er á milli þess að hafa langt typpi og að vera mikill karlmaður. Raunin er sú að það er flókið að vera með stóran lim. Því stærri sem hann er, því meira af honum stendur fyrir utan aðalpartíið því hann einfaldlega kemst ekki allur fyrir.

Við þurfum að breyta því hvernig við tölum um typpi, frammistöðu og kynlíf. Það er ekki til skapalón yfir hinn fullkomna lim. Fólk er alls konar og flestir bólfélagar beita bæði munni og höndum í kynlífi en treysta ekki eingöngu á hverfulan lim. Sem betur fer. Kynlíf fellur ekki og stendur með typpinu.

Ef fólk festist í þeirri hugsanagildru þá getur kynlífið ekki verið upp á marga fiska. Kynferðisleg frammistaða byggist á tengslum á milli bólfélaga, afslöppun, vellíðan, sjálfstrausti og einlægni.

Gott kynlíf er ekki mælt út frá reglustiku heldur ykkur sem stundið það.


Tengdar fréttir

Smokkar í stærðum?

Ef smokkur getur teygst sem nemur hálfum handlegg, af hverju er hann þá fáanlegur í stærðum?

Bogið typpi

Það er eðlilegt að vera með bogið typpi en getur boginn verið of mikill, jafnvel hættulegur?

Umskorið typpi

Umskurður typpa er ekki algengur hér á landi þó hann sé það víðar. Hvað felst í því að umskera typpi og hefur það áhrif á kynlífið?

Hugsar þú vel um typpið þitt?

Það er að mörgu að huga í umhirðu limsins og hér gefur sérfræðingur ráð um hvernig sé best að hugsa sem best um litla vininn

Forhúðin

Forhúðin ver kónginn (fremsta hluta typpisins) og getur verið þröng, víð, mikil, lítil og jafnvel ekki til staðar.

Getur typpið minnkað?

Margir pæla í typpastærð en getur typpið minnkað eða jafnvel horfið?

Saga tveggja typpis manns

Bandaríkjamaður fæddist með tvö starfhæf typpi og nú hefur hann ritað ævisögu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×