Innlent

Týndi ferðafélögum og mundi ekki nafnið á hótelinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/kolbeinn Tumi
Enskur ferðamaður leitaði aðstoð lögreglu í nótt. Hann var ölvaður og ný kominn til landsins. Ferðamaðurinn hafði týnt ferðafélögum sínum við drykkju og mundi ekki nafnið á hótelinu þar sem þeir höfðu pantað gistingu.

Samkvæmt dagbók lögreglunnar tókst þó að koma ferðamanninum á réttan stað eftir töluverða leit.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók nokkra ölvaða ökumenn úr umferð í nótt og er einn þeirra grunaður um að hafa ekið á annan bíl og skemmt hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×