Fótbolti

Twitter eftir magnaðan leik á Anfield: „Kýldi gaurinn í röðinni fyrir framan mig“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Liverpool fagna í kvöld.
Leikmenn Liverpool fagna í kvöld. vísir/afp
Liverpool stuðningsmenn og fleiri áhugamenn um knattspyrnu heilluðust af leik Mohamed Salah og Liverpool er liðið vann 5-2 sigur á Roma í Meistaradeildinni fyrr í kvöld. Um var að ræða fyrri leik liðanna í undanúrslitum keppninnar en leikið var á Anfield í Bítlaborginni.

Liverpool spilaði algjörlega frábærlega í kvöld og liðið lék við hvurn sinn fingur. Fremstur í flokki var Mohamed Salah en Egyptinn skoraði tvö mörk og lagði upp tvö önnur. Honum var skipt af velli um tuttugu mínútum fyrir leikslok í stöðunni 5-0 fyrir heimamenn.

Roma náði að klóra í bakkann með tveimur mörkum undir lokin og á enn von fyrir síðari leikinn í Rómarborg. Ítalska liðið sló Barcelona út í átta liða úrslitum keppninnar. Liðið tapaði þá fyrri leiknum á Spáni 4-1 og útlitið svart. Rauðklæddir Rómverjar unnu hins vegar 3-0 sigur í síðari leiknum og tryggðu sér óvænt sæti í undanúrslitum.

Að venju var Twitter líflegur vettvangur yfir leiknum í kvöld. Hér að neðan má sjá brot af því besta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×