Lífið

Twitter bregst við endurkomu SDG: "Sigmundur Davíð kominn með vinstri manna skegg“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Fyrsta Snapchat Sigmundar Davíðs í þó nokkurn tíma vekur athygli.
Fyrsta Snapchat Sigmundar Davíðs í þó nokkurn tíma vekur athygli.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarmanna og fyrrum forsætisráðherra, kom í fyrsta sinn opinberlega fram síðan hann sagði af sér í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Fram að þessu hefur hann sáralítið tjáð sig um atburðarrásina sem fór af stað eftir að viðtal var birt við hann í Kastljósþætti 4. apríl þar sem hann var spurður út í aflandsfélagið Wintris.

Sjá einnig: Sigmundur Davíð tjáir sig í fyrsta sinn eftir afsögn sína: Sá aldrei blaðamannafund Ólafs Ragnars

Fyrst birti Sigmundur Davíð þó mynd af sér á Snapchat þar sem hann skartar ljósu, tættu skeggi og spyr: „Hvað? Hélduð þið að ég væri hættur á Snapchat?“ Tístarar glöddust allmargir við þessa tilkynningu Sigmundar, aðrir lýstu vonbrigðum en menn hafa ekki látið hjá líða að tjá sig um endurkomuna í morgun. 



Hér að neðan má sjá nokkur vel valin tíst um málið:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×