Handbolti

Twitter á flugi: Bilun fyrir hjartað

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Þór Gunnarsson skorar eftir hraðaupphlaup.
Arnór Þór Gunnarsson skorar eftir hraðaupphlaup. vísir/afp
Ísland er einu marki undir í hálfleik gegn Frakklandi, 14-13, í leik liðanna í 16-liða úrslitum á HM í handbolta. Leikurinn fer fram fyrir framan 28 þúsund manns í Lille.

Strákarnir byrjuðu frábærlega í leiknum og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. Frakkar komu sér síðan af stað og voru skrefi framar síðasta stundarfjórðunginn. En okkar menn gáfust aldrei upp og leyfðu Frökkum aldrei að stinga af.

Frammistaða Íslands hefur vakið verðskuldaða athygli meðal netverja á Twitter og ekki að ástæðulausu.
























































Fleiri fréttir

Sjá meira


×