Handbolti

Tvö rauð spjöld á loft þegar FH vann Hauka | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
FH-ingurinn Ágúst Birgisson í hörðum slag inn á línunni.
FH-ingurinn Ágúst Birgisson í hörðum slag inn á línunni. vísir/stefán
Það verður FH sem mætir Aftureldingu í úrslitaleik Flugfélags Íslands bikarsins í handbolta á morgun.

FH-ingar mættu grönnum sínum í Haukum í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld og unnu dramatískan sigur, 24-25.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Hertz-höllinni í kvöld og tók meðfylgjandi myndir.

Leikurinn var hnífjafn líkt og leikur liðanna í Olís-deildinni fyrr í mánuðinum. Þá unnu Haukar eins marks sigur, 29-30, í Kaplakrika.

Tvö rauð spjöld fóru á loft í seinni hálfleiknum í kvöld. FH-ingurinn Halldór Ingi Jónasson var rekinn út af á 49. mínútu og tveimur mínútum síðar fór Haukamaðurinn Einar Pétur Pétursson sömu leið.

Daníel Þór Ingason kom Haukum yfir, 23-22, þegar fjórar mínútur voru eftir. Ásbjörn Friðriksson svaraði með tveimur mörkum og Arnar Freyr Ársælsson kom FH svo tveimur mörkum yfir, 23-25, þegar mínúta var eftir.

Jón Þorbjörn Jóhannsson minnkaði muninn í 24-25 og Haukar fengu svo tækifæri til að jafna í lokasókn sinni. FH-vörnin var hins vegar þétt fyrir og náði að brjóta. Lokatölur 24-25, FH í vil.

Mörk Hauka:

Daníel Þór Ingason 9/2, Andri Heimir Friðriksson 8, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 3, Heimir Óli Heimisson 2, Einar Pétur Pétursson 1, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1.

Mörk FH:

Ásbjörn Friðriksson 9/6, Einar Rafn Eiðsson 4/2, Ágúst Birgisson 4, Jóhann Birgir Ingvarsson 3, Halldór Ingi Jónasson 2, Arnar Freyr Ársælsson 2, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1.

vísir/stefán

Tengdar fréttir

Mosfellingar sigu fram úr undir lokin

Afturelding er komið í úrslit Flugfélags Íslands bikarsins í handbolta eftir sigur á Val, 25-23, í fyrri undanúrslitaleiknum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×