Fótbolti

Tvö mörk Viðars dugðu ekki til sigurs

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Viðar Örn getur ekki hætt að skora
Viðar Örn getur ekki hætt að skora mynd/heimasíða Vålerenga
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Vålerenga sem gerði 3-3 jafntefli við Brann í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Viðar Örn kom Vålerenga í 2-0 á 26. mínútu og í 3-1 á 67. mínútu en tveimur mínútum síðar kom Birkir Már Sævarsson inn á sem varamaður hjá Brann.

Viðari Erni var skipt af leikvelli á tveimur mínútum fyrir leikslok en mínútu áður hafði Brann jafnað metin.

Viðar Örn er nú búinn að skora 21 mark í 21 leik og er lang markahæsti leikmaður deildarinnar.

Vålerenga er í 4. sæti deildarinnar með 33 stig í 21 leik. Brann er í næst neðsta sæti með 19 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×