Fótbolti

Tvö mörk frá Ronaldo en titillinn til Barcelona | Sjáðu mörkin

Ronaldo fagnar fyrsta marki sínu í dag.
Ronaldo fagnar fyrsta marki sínu í dag. vísir/getty
Cristiano Ronaldo afgreiddi Deportivo La Coruna fyrir Real Madrid í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í dag, en lokatölur urðu 2-0.

Sigurinn dugði ekki til að vinna spænska titilinn, en í hinum leiknum vann Barcelona hinn leik og þarf því Real að gera sér annað sæti til geðs.

Ronaldo kom Real yfir á sjöundu mínútu, en á 25. mínútu tvöfaldaði hann forystuna. Ekki urðu mörkin fleiri, en Ronaldo fór af velli í hálfleik, líklega vegna meiðsla.

Þetta er þriðja tímabilið í röð þar sem Real nær ekki að landa spænska deildarmeistaratitlinum.

0-1 Ronaldo: 0-2 Ronaldo:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×