Fótbolti

Tvö mörk frá Isco í stórsigri Real Madrid

Raphael Varane fagnar marki sínu gegn Betis í kvöld.
Raphael Varane fagnar marki sínu gegn Betis í kvöld. Vísir/Getty
Real Madrid vann 6-1 sigur á Real Betis á heimavelli þeirra síðarnefndu í Sevilla í dag. Stórliðin þrjú, Barcelona, Atletico og Real unnu öll risasigra í dag.

Það var ljóst strax í upphafi í hvað stefndi. Raphael Varane kom gestunum yfir strax á 4.mínútu leiksins og á síðustu 15 mínútum fyrri hálfleiks bættu leikmenn Real við þremur mörkum til viðbótar.

Fyrst skoraði Karim Benzema mark af stuttu færi og þeir Marcelo og Isco komu boltanum í netið áður en flautað var til háfleiks.

Alvaro Cejudo minnkaði muninn fyrir Betis í upphafi síðari hálfleiks en Isco skoraði annað mark sitt og fimmta mark Real á 62.mínútu með frábæru skoti úr teignum.

Það var svo að sjálfsögðu Cristiano Ronaldo sem setti punktinn yfir i-ið þegar hann slapp í gegnum vörn heimamanna og skoraði af öryggi. 6-1 urðu lokatölurnar og Real því með jafnmörg stig og nágrannar sínir í Atletico en Madridarliðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×