Erlent

Tvö ljón sluppu úr búri sínu í þýskum dýragarði

Atli ísleifsson skrifar
Um klukkan hálf tólf tókst að koma öðru dýrinu inn í búrið en aflífa varð hitt. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Um klukkan hálf tólf tókst að koma öðru dýrinu inn í búrið en aflífa varð hitt. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Tveimur ljónum tókst að sleppa úr búrum sínum í dýragarðinum í Leipzig í nótt.

Leipziger Volkszeitung greinir frá þessu. Garðurinn var rýmdur og leituðu starfsmenn logandi ljósi að dýrunum.

Þeim orðum var komið til íbúa Leipzig að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að ljónin, Majo og Motshegetsi, myndu líta í heimsókn þar sem þau væru innan afgirts dýragarðssvæðisins.

Um klukkan hálf tólf í dag að íslenskum tíma tókst að koma öðru dýrinu inn í búrið en aflífa varð hitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×