Lífið

Tvíburasystir hjásvæfu lumbraði á Ashley Cole

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ashley Cole, Carla Howe og umræddur hnefi.
Ashley Cole, Carla Howe og umræddur hnefi.
Fótboltakappinn Ashley Cole fékk heldur betur að finna til tevatnsins á næturklúbbi í Lundúnum í gærkvöldi þegar Playboy-kanínan Carla Howe gaf honum þrjá á lúðurinn.

Atvikið á sér stað í kjölfar háværra orðróma um að Ashley Cole hafi sofið hjá tvíburasystur Howe, Melissu, skömmu eftir að hann skildi við eiginkonu sína Cheryl Fernandez-Versini - áður Cheryl Cole.

Howe fór beint á Twitter eftir árásina þar sem hún montaði sig af höggunum sem hún veitti vinstri bakverðinum.

Þar skrifaði hún: „Glöð með að hafa veitt  @TheRealAC3 langþráðar barsmíðar” og með því fylgdi hlæjandi broskall.

Síðan þá hefur hún eytt tístinu en hún sagði í samtali við The DailyStar að fótboltakappinn hafi verið að angra sig á skemmtistaðnum. 'Ég vissi ekki hvað var að eiga sér sér stað. Ég var hrædd svo að ég sló hann. Ég var með hring á hendi og lamdi hann þrisvar sinnum í kjálkann. Eftir það hljóp hann um öskrandi 'Hún sprengdi á mér varirnar!” sagði Howe. Þá tók við fúkyrðaflaumur. 'Enginn reyndi að stöðva mig, mig grunar að það sé vegna þess að Ashley er með slæmt karma. Ég gerði þetta fyrir systur mína. Hann kemur illa fram við konur. Hann er algjör rasshaus,” sagði Playboy-kanínan. Fyrrum landsliðsmaðurinn hefur ekki tjáð sig um málið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×