Lífið

Tvíburar komust að kynhneigð hvors annars eftir að hafa verið með sama manninum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zakar-tvíburarnir eru miklir snillingar.
Zakar-tvíburarnir eru miklir snillingar.
Tvíburarnir Michael Zakar og Zach Zakar eru samfélagsmiðlastjörnur. Þeir halda úti vinsælum síðum á Twitter, Facebook, YouTube og Instagram.

Á dögunum kom út nýtt myndband á YouTube frá bræðrunum þegar þeir sögðu söguna af því þegar þeir komu báðir út úr skápnum fyrir hvort öðrum.

Sagan er í raun stórkostleg þar sem bræðurnir kysstu báðir sama manninn á sínum tíma,  og það inni á sama klósettinu í gagnfræðiskóla og í sömu vikunni.

Zakar-tvíburarnir eru nefnilega báðir samkynhneigðir en leyndu því alltaf fyrir hvor öðrum.

Hér að neðan má horfa á söguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×