Innlent

Tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur á Suðurnesjum

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla á Suðurnesjum handtók einnig ökumann sem var áberandi ölvaður undir stýri og ekki með bílbelti spennt.
Lögregla á Suðurnesjum handtók einnig ökumann sem var áberandi ölvaður undir stýri og ekki með bílbelti spennt. Vísir/Hari
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af tveimur ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur í gærkvöldi.

Einn þeirra var handtekinn eftir að hann viðurkenndi neyslu fíkniefna sem sýnatökur síðan staðfestu.

„Hinn var ekki í öryggisbelti þegar hann var stöðvaður. Grunur vaknaði um að hann æki undir áhrifum fíkniefna þegar lögreglumenn ræddu við hann. Sá grunur reyndist á rökum reistur, því hann viðurkenndi neyslu. Jafnframt viðurkenndi hann að á heimili sínu væru fíkniefni og þar fundust slík efni á sófaborði og einnig í ísskáp.

Áður hafði lögregla handtekið ökumann sem var áberandi ölvaður undir stýri og ekki með bílbelti spennt,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×