Lífið

Tveir samningar í Þýskalandi

Katrín Edda Þorsteinsdóttir er að gera góða hluti í Þýskalandi.
Katrín Edda Þorsteinsdóttir er að gera góða hluti í Þýskalandi. Mynd/Einkasafn
Fittneskeppandinn og vélaverkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir er komin með samning hjá fæðubótarfyrirtækinu PES - Physique Enhancing Science. Hún verður andlit fyrirtækisins í Þýskalandi.

Á Facebook-síðu hennar kemur fram að fyrirtækið ætli að styrkja hana fjárhagslega og aðstoða hana við þátttöku í komandi fittnessmótum.

Katrín, sem stundar meistaranám í Þýskalandi, hefur einnig gert samning við þýska fyrirtækið Gymaesthetics sem framleiðir íþróttafatnað og verður sömuleiðis andlit þess þar í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×