Erlent

Tveir létust þegar sirkustjald hrundi

Atli Ísleifsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AP
Karlmaður og stúlka létust og að minnsta kosti 22 slösuðust þegar sirkustjald hrundi í miklu óveðri í New Hampshire í gær.

Slysið varð síðdegis í gær þegar fyrri af tveimur sýningum dagsins var hafin í tjaldinu sem hafði verið komið fyrir í Lancaster skemmtigarðinum, í norðurhluta ríkisins.

Í frétt ABC segir að um 100 manns hafi verið í tjaldinu þegar það hrundi. Báðir hinna látnu voru í hópi áhorfenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×