Körfubolti

Tveir í röð hjá Grindavíkingum - öll úrslit kvöldsins í körfunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ómar Sævarsson.
Ómar Sævarsson. Vísir/Ernir
Grindvíkingar eru að lifna við í karlakörfuboltanum eftir erfitt gengi á fyrri hluta tímabilsins en Grindavíkurliðið fangaði sínum öðrum sigri í röð í kvöld þegar liðið vann 11 stiga heimasigur á Snæfelli, 98-87.

Grindavík var aðeins búið að vinna tvo af fyrstu níu leikjum sínum fyrir þessa tvo sigurleiki í röð en núna er liðið aftur farið að nálgast sætin sem gefa farseðla í úrslitakeppnina næsta vor.

Rodney Alexander fór á kostum í Grindavíkurliðinu í kvöld en hann var með 27 stig, 16 fráköst og 6 stoðsendingar en fyrirliðinn Ómar Sævarsson bætti við 12 stigum, 8 fráköst og 7 stoðsendingum.

Annars voru margir að skora fyrir Grindavík í kvöld og alls skoruðu sex leikmenn liðsins níu stig eða minna.

Grindavíkurliðið lagði eiginlega grunninn að sigrinum með ótrúlegum kafla í byrjun annars leikhluta sem liðið vann 18-2 og komst í framhaldinu 19 stigum yfir, 42-23.

Grindavík var þremur stigum eftir fyrsta leikhlutann, 24-2, en var síðan með tíu stiga forskot í hálfleik, 53-43.

Hér fyrir neðan má sjö öll úrslit og alla stigaskorara í leikjum kvöldsins í Dominos-deild karla í körfubolta.



Grindavík-Snæfell 98-87 (24-21, 29-22, 25-24, 20-20)

Grindavík: Rodney Alexander 27/16 fráköst/6 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 17/5 fráköst, Hilmir Kristjánsson 13, Ómar Örn Sævarsson 12/8 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, Daníel Guðni Guðmundsson 9, Magnús Þór Gunnarsson 9, Þorsteinn Finnbogason 6/5 fráköst, Hinrik Guðbjartsson 3/5 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 2.

Snæfell: Austin Magnus Bracey 29, Christopher Woods 21/14 fráköst/3 varin skot, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 14, Sigurður Á. Þorvaldsson 12/5 fráköst, Stefán Karel Torfason 8/5 fráköst/5 stoðsendingar, Sveinn Arnar Davíðsson 3.



Njarðvík-Þór Þ. 96-68 (23-15, 22-15, 25-19, 26-19)

Njarðvík: Dustin Salisbery 44/13 fráköst, Logi Gunnarsson 21/4 fráköst, Ágúst Orrason 12, Ragnar Helgi Friðriksson 6, Hjörtur Hrafn Einarsson 4/9 fráköst, Ólafur Aron Ingvason 4, Mirko Stefán Virijevic 3/9 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 2.

Þór Þ.: Grétar Ingi Erlendsson 18/9 fráköst, Emil Karel Einarsson 14/5 fráköst, Þorsteinn Már Ragnarsson 9, Vincent Sanford 8/6 fráköst, Oddur Ólafsson 6, Tómas Heiðar Tómasson 6, Nemanja Sovic 4/4 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 3.



ÍR-Stjarnan 78-79 (15-20, 24-19, 10-22, 29-18)

ÍR: Sveinbjörn Claessen 20/4 fráköst/5 stoðsendingar, Matthías Orri Sigurðarson 17/5 fráköst/6 stoðsendingar, Vilhjálmur Theodór Jónsson 16/9 fráköst, Trey Hampton 11/9 fráköst, Kristján Pétur Andrésson 7/5 fráköst, Ragnar Örn Bragason 3, Hamid Dicko 2, Sæþór Elmar Kristjánsson 2/4 fráköst.

Stjarnan: Dagur Kár Jónsson 17, Jarrid Frye 16/12 fráköst, Justin Shouse 14/6 fráköst/5 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 12/6 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 9/6 fráköst, Sigurður Dagur Sturluson 5, Ágúst Angantýsson 4/8 fráköst, Tómas Þórður Hilmarsson 2/4 fráköst.

 

Tindastóll-Skallagrímur 104-68 (29-21, 15-17, 30-12, 30-18)

Tindastóll: Myron Dempsey 27/12 fráköst, Darrel Keith Lewis 20, Svavar Atli Birgisson 16/12 fráköst/6 stoðsendingar, Pétur Rúnar Birgisson 14/11 stoðsendingar/4 varin skot, Hannes Ingi Másson 9, Helgi Rafn Viggósson 6/4 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 4/6 stoðsendingar, Þráinn Gíslason 3, Sigurður Páll Stefánsson 3, Ingvi Rafn Ingvarsson 2.

Skallagrímur: Tracy Smith Jr. 29/15 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 19/6 fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson 9/7 fráköst/8 stoðsendingar/7 stolnir, Davíð Ásgeirsson 6, Daði Berg Grétarsson 3/5 fráköst, Atli Aðalsteinsson 2.



KR-Fjölnir 103-62 (21-18, 32-15, 24-15, 26-14)

KR: Michael Craion 34/17 fráköst/5 stolnir, Darri Hilmarsson 15, Helgi Már Magnússon 15/5 fráköst, Pavel Ermolinskij 10/14 fráköst/10 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 10/6 fráköst, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 6, Vilhjálmur Kári Jensson 5, Ragnar Jósef Ragnarsson 2, Illugi Steingrímsson 2, Högni Fjalarsson 2, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 2..

Fjölnir: Arnþór Freyr Guðmundsson 15/6 fráköst/5 stoðsendingar, Daron Lee Sims 11/12 fráköst, Sindri Már Kárason 10/4 fráköst, Róbert Sigurðsson 7, Ólafur Torfason 5/6 fráköst, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 5, Garðar Sveinbjörnsson 4, Árni Elmar Hrafnsson 3, Alexander Þór Hafþórsson 2.


Tengdar fréttir

Pavel með enn eina þrennuna - KR með enn einn sigurinn

KR-ingar fara taplausir í jólafrí eftir 41 stigs sigur á botnliði Fjölnis, 103-62, í Dominos-deild karla í DHL-höllinni í kvöld en þetta var lokaleikur liðanna á árinu 2014. Það stoppar ekkert KR-liðið eða Pavel Ermolinskij sem náði enn einni þrennunni í kvöld.

Dustin kvaddi Njarðvík með stórleik í stórsigri

Dustin Salisbery lék sinn síðasta leik með Njarðvíkingum í kvöld þegar þeir unnu 28 stiga stórsigur á Þór úr Þorlákshöfn, 96-68, í Dominos-deild karla í kvöld en þetta var lokaleikur liðanna fyrir jólafrí.

Stólarnir áfram fullkomnir á heimavelli

Tindastóll verður með fullkominn heimavallarárangur yfir jólin eftir 36 stiga stórsigur á Skallagrími, 104-68, í Dominos-deild karla í kvöld en þetta var lokaleikur liðanna fyrir jólafrí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×