Innlent

Tveir í haldi eftir árás á opinbera starfsmenn

Tveir menn voru handteknir í fjölbýlishúsi í Kópavogi snemma í gærkvöldi eftir að hafa sýnt opinberum starfsmönnum ofbeldi og tálmað lögreglu í störfum.

Þeir eru vistaðir í fangageymslum og verða yfirheyrðir í dag. Ekkert kemur fram í skeyti lögreglu um eðli málsins eða hvort einhver þurfti að leita aðhlynningar á Slysadeild vegna átakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×