Golf

Tveir í forystu á Kapalua fyrir lokahringinn

Jimmy Walker hefur leikið mjög vel hingað til.
Jimmy Walker hefur leikið mjög vel hingað til. AP
Eftir þrjá hringi á Hyundai Tournament of Champions sem fram fer á Hawaii deila þeir Hideki Matsuyama frá Japan og Bandaríkjamaðurinn Jimmy Walker forystunni á 17 höggum undir pari.

Jafnir í öðru sæti koma þeir Sang-Moon Bae og Patrick Reed á 15 höggum undir pari en sá síðarnefndi spilaði frábært golf í gær á þriðja hring og fékk ekki einn einasta skolla.

Matsuyama lék samt sem áður best allra í gær á hinum fallega Kapalua velli en hann kom inn á 66 höggum eða sjö undir pari.

Zach Johnson sem á titil að verja og var í forystunni eftir tvo hringi þurfti að sætta sig við hring upp á 73 högg eða par vallar en hann er á 11 höggum undir pari.

Lokahringurinn verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 21:00 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×