Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum hefur handtekið tvo menn sem grunaðir eru um að hafa skotið fimm manns á föstudagskvöldið, þar af þrjá til bana, í borginni Tulsa.
Fórnarlömbin voru öll þeldökk og er talið að kynþáttahatur hafi verið hvatinn að árásunum.
Í kjölfar árásanna greip mikill ótti um sig í hverfum Tulsa þar sem þeldökkir eru í meirihluta.
Mennirnir sem handteknir voru í dag eru báðir hvítir - 19 og 32 ára gamlir. Ekki er vitað hvort að mennirnir séu tengdir fjölskyldubönum.
Þá vilja lögregluyfirvöld í Tulsa ekki tjá sig um hvort að um hatursglæp kynþáttahatara hafi verið að ræða.