Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekki fást upplýsingar um líðan þeirra slösuðu að svo stöddu.
Ekki fást upplýsingar um líðan þeirra slösuðu að svo stöddu. vísir/vilhelm
Harður árekstur varð á þriðja tímanum í dag á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Skógarsels.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um tvo jeppa að ræða og fór annar jeppinn eina veltu en endaði á hjólunum.

Ökumennirnir voru einir í bílunum og voru þeir báðir fluttir á slysadeild. Ekki fást upplýsingar um líðan mannanna að svo stöddu frá Landspítalanum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×