Golf

Tveir Ástralir efstir á PGA-meistaramótinu þegar leik var frestað á öðrum hring

Kári Örn Hinriksson skrifar
Það kemur engum á óvart að Jordan Spieth sé í toppbaráttunni.
Það kemur engum á óvart að Jordan Spieth sé í toppbaráttunni. Getty
Það eru tveir Ástralir sem leiða á PGA-meistaramótinu sem fram fer á Whistling Straits vellinum eftir tvo daga en Jason Day og Matt Jones deila efsta sætinu á níu höggum undir pari.

Hvorugur þeirra hafa þó lokið við 36 holur en leik var frestað seint á öðrum hring í dag vegna þrumuveðurs og því þurfa þeir keppendur sem ekki náðu að klára að vakna snemma á morgun til þess að vinna upp töfina.

Þegar þetta er skrifað er Englendingurinn Justin Rose í öðru sæti á átta höggum undir pari en nokkrir koma þar á eftir á sjö undir.

Jordan Spieth og Rory McIlroy voru í hópi þeirra sem náðu að klára á öðrum hring en Spieth er ofarlega á skortöflunni á samtals sex undir pari á meðan að McIlroy siglir lygnan sjó á tveimur undir.

Gengi Tiger Woods hefur verið dapurt en eftir 30 holur er hann á fjórum höggum yfir pari og þarf Tiger að leika þær holur vel sem hann á eftir í fyrramálið til þess að ná niðurskurðinum.

Það áttu þó fáir verri dag en hinn litríki John Daly en hann setti þrjá bolta út í vatnið á 7. holu og fékk að lokum 10 högg á þessa löngu og krefjandi par-3 holu.

Hann lét reiðina bitna á golfkylfunni í kjölfarið en hann grýtti henni út í vatnið, sömu leið og boltarnir fóru við mikinn fögnuð áhorfenda en Daly er annálaður skaphundur.

Útsending frá þriðja hring á morgun hefst á Golfstöðinni klukkan 18:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×