Innlent

Tveimur bílum stolið af bílasölu í Reykjavík

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Benz-bifreið og sendiferðabíl var stolið í nótt.
Benz-bifreið og sendiferðabíl var stolið í nótt.
Tveimur bílum var stolið af bílasölunni Bifreiðasölunni á Malarhöfða í Reykjavík í nótt. Málið er á borði lögreglunnar, að sögn eiganda bílasölurnnar. Um er að ræða silfurlitaða Mercedez Benz-bifreið og sendiferðabíl af gerðinni Renault Trafic.



Sendiferðabíllinn er með númerið RH-N90 og er ljósgrár að lit. Benz-bifreiðin er af gerðinni C C200 Kompressor, með númerið ZZ-371 og er ljósgrár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×