Innlent

Tveggja og hálfs árs heimilisofbeldisdómur ómerktur í Hæstarétti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hæstiréttur taldi niðurstöðu héraðsdóms þversagnakennda.
Hæstiréttur taldi niðurstöðu héraðsdóms þversagnakennda. vísir/gva
Hæstiréttur ómerkti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því þann 21. júní síðastliðinn en karlmaður var þá dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir meðal annars frelsissviptingu, meiriháttar líkamsárás, kynferðislega áreitni, hótanir og stórfelldar ærumeiðingar gegn sambýliskonu sinni.

Þá var hann einnig sakfelldur fyrir nauðgun með því að hafa þvingað konuna til munnmaka en sýknaður af nauðgun þegar hann hafði í kjölfar munnmakanna endaþarmsmök við konuna þar sem héraðsdómur taldi að hann hefði verið í góðri trú þá, miðað við framburð konunnar fyrir dómi og hjá lögreglu.

Sjá einnig: Í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa beitt sambýliskonu sína grófu ofbeldi



Í reifun á dómi Hæstaréttar kemur fram að þegar litið væri til þess ofbeldis sem maðurinn hefði beitt konuna „á heimili þeirra og aðstæðna allra fælist þversögn í þeirri niðurstöðu héraðsdóms að sakfella fyrir fyrri hluta háttsemislýsingar nauðgunarbrotsins en sýkna af sakargiftum vegna hennar að öðru leyti.

Voru því taldar fram komnar nægar líkur fyrir því að niðurstaða héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi kynni að vera röng svo að einhverju skipti um úrslit máls, sbr. 3. mgr. 208. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var hinn áfrýjaði dómur því ómerktur og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til meðferðar og dómsálagningar að nýju,“ að því er segir í reifun dómsins.

Málið þarf því að fara að nýju fyrir héraðsdóm en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 7. febrúar síðastliðinn. Hæstiréttur úrskurðaði manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald í gær þar til að dómur í máli hans myndi ganga fyrir Hæstarétti en þó eigi lengur en til 23. desember. Nú þegar Hæstiréttur hefur dæmt í málinu ætti að láta manninn lausan samkvæmt öllum lögum og reglum.

Dóm Hæstaréttar má sjá í heild sinni hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×