Innlent

Tveggja leitað á Vestfjörðum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sjö hópar björgunarmanna leita fólksins.
Sjö hópar björgunarmanna leita fólksins. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir Landsbjargar á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út til leitar á ellefta tímanum í kvöld vegna pars sem ekki hefur skilað sér úr göngu.

Fram kemur í tilkynningu að parið hafi ætlað að ganga frá Bolungarvík að Galtarvita og þaðan í Selárdal en þar sem það skilaði sér ekki á réttum tíma var ákveðið að hefja leit.

Svæðið er nokkuð erfitt yfirferðar en alls eru sjö hópar björgunarmanna lagðir af stað til leitar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×