Innlent

Tveggja ára fangelsi: Nýtti sér ölvun og svefndrunga konu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndin er sviðsett.
Myndin er sviðsett. Vísir/Getty
Tæplega þrítugur karlmaður, Marcel Wojcik, var á dögunum dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir nauðgun með því að hafa sleikt kynfæri konu þar sem hún lá sofandi í rúmi og notfært sér að hún gat ekki veitt mótspyrnu sökum ölvunar og svefndrunga.  Þau höfðu verið saman í partýi hjá sameiginlegum vini í september 2014 en orðið tvö eftir í íbúðinni á meðan sambýlismaður hennar og fleiri gestir héldu út á lífið um nóttina.

Konan mætti ásamt sambýlismanni sínum í íbúð vinar þeirra 10. september 2014. Þar hittu þau Marcel sem fékk að dvelja tímabundið á heimili vinarins. Konan sagðist hafa sofnað áfengisdauða um nóttina í stofunni en vaknað um klukkan fimm við það að Marcel lá á milli fóta hennar og var að hafa við hana munnmök. Sagði hún fyrir dómi að það hefði tekið nokkrar sekúndur fyrir hana að átta sig en þegar hún sá hver var á milli fóta sér hafi hennar fyrstu viðbrögð verið að segja honum að hún væri á blæðingum.

Marcel á að hafa sagt að sér væri alveg sama og togað hana til sín. Í sömu mund hefði þriðji gestur komið aftur heim. Hringdi konan í sambýlismann sinn í kjölfarið og var í miklu uppnámi. Gesturinn spjallaði við Marcel og sagði í skýrslutöku hjá lögreglu að dæmdi hefði viðurkennt að hafa verið að „putta“ brotaþola. Hann sagðist hins vegar hafa fengið leyfi til þess. Því harðneitaði brotaþoli.

Dæmdi bar við minnisleysi hjá lögreglu en þó með þeim fyrirvara að hefði eitthvað gerst hjá honum og konunni hefði það verið með leyfi konunnar.

DNA-rannsókn styður framburð konunnar

Óumdeilt er að konan var mikið ölvuð og neytti einnig kannabisefna. Þá hafði hún verið á fótum frá því hún sinnti ungum börnum sínum snemma að morgni dags. Bjór og kannabis ofan í þreytuna hefði gert hana mjög syfjaða. Reyndu sambýlismaður hennar og vinur að vekja hana áður en þeir héldu í bæinn en án árangurs.

Í dómi Héraðsdóms segir að framburður konunnar sé trúverðugur og fái bæði stuðning í framburði vitna og niðurstöðu DNA-rannsóknar. Ákærði hafi borið fyrir sig minnisleysi og framburður hans hafi ekki verið afdráttarlaus. Þá dregur frásögn vitnisins sem fyrst sneri heim úr trúverðugleika Marcels um það að kynferðismök hafi ekki átt sér stað.

Marcel hefur hlotið átta refsidóma frá árinu 2006 fyrir líkamsárásir, húsbrot, eignaspjöll og þjófnaðarbrot. Þykir refsing hans hæfileg tvö ár í fangelsi. Þá þarf hann að greiða konunni eina milljón króna í skaðabætur.

Dóminn í heild sinni má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×