Innlent

Tvær kannabisræktanir stöðvaðar í Hafnarfirði

Birgir Olgeirsson skrifar
Lagt var hald á 300 kannabisplöntur.
Lagt var hald á 300 kannabisplöntur. Vísir/Hari
Lögreglan stöðvaði tvær kannabisræktanir í Hafnarfirði í vikunni og lagði hald á samtals um 300 kannabisplöntur. Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var önnur ræktunin  í íbúðarhúsi í bænum, en hin í iðnaðarhúsnæði og voru þær nokkuð umfangsmiklar eins og að framan greinir.

Lagt var hald á töluvert af búnaði sem tengdist starfseminni á báðum stöðunum. Einn var handtekinn í tengslum við rannsóknina á kannabisræktuninni í iðnaðarhúsnæðinu og játaði viðkomandi sök, en rannsókn málsins er langt komin. 

Skýrslutökum í hinu málinu er hins vegar ólokið, en þar var kannabisræktun í tveimur herbergjum hússins. Þessu til viðbótar handtók lögreglan sölumann fíkniefna í Hafnarfirði, en við húsleit á heimili hans í bænum var lagt hald á kannabisefni og e-töflur. Þar var einnig að finna fjármuni, sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×