Fótbolti

Tvær frá Tævan í Árbænum í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Shu-o Tseng í leik með Fylki í fyrra.
Shu-o Tseng í leik með Fylki í fyrra. Vísir/Stefán
Fylkismenn hafa styrkt kvennalið sitt með tveimur erlendum leikmönnum fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar og þær koma báða frá Asíuríkinu Tævan.

Man-ting Lin og Shu-o Tseng hafa báðar gert samning við Árbæjarliðið en Fylkismenn þekkja vel til þeirra síðatnefndu sem lék með Fylkisliðinu í fyrra. Þetta kemur fram á fótbolti.net.

Man-ting Lin er 25 ára varnar- eða miðjumaður sem spilaði síðast í Frakklandi og á Spáni. Shu-o Tseng er 31 árs sóknarmaður sem skoraði 1 mark í 13 leikjum með Fylki í Pepsi-deildinni í fyrrasumar.

Tseng Shu-o spilaði áður í Þýskalandi, Frakklandi og í Ástralíu en hún vakti mikla athygli þegar hún spilað með fjólublátt hár í áströlsku deildinni.

Fylkisliðið náði sjötta sætinu í Pepsi-deildinni í fyrrasumar sem er einu sæti neðar en liðið varð sem nýliði í deildinni sumarið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×