Tónlist

Tvær dívur leiða saman hesta sína

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband við endurhljóðblandaða útgáfu af laginu Flawless með söngstjörnunum Nicki Minaj og Beyoncé er komið á netið.

Myndskeið sem notuð eru í myndbandið eru tekin upp á tónleikaferðalagi Beyoncé, On the Run, nánar tiltekið á tónleikum í París fyrir skömmu.

Ekki er ljóst hvort söngkonurnar muni búa til annað myndband fyrir lagið sem inniheldur ekki upptöku af tónleikunum en nú þegar hafa aðdáendur þeirra hvatt þær til þess á samfélagsmiðlunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×