Körfubolti

Turner til Boston Celtics

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Evan Turner mun klæðast grænu á næsta tímabili.
Evan Turner mun klæðast grænu á næsta tímabili. Vísir/Getty
Bandaríski körfuboltamaðurinn Evan Turner er genginn til liðs við Boston Celtics.

Turner, sem var valinn annar í nýliðavalinu 2010, gekk í raðir Indiana Pacers frá Philadelphia 76ers um mitt síðasta tímabil. Hann náði sér hins vegar ekki á strik hjá Indiana og því var samningur hans ekki framlengdur.

Turner hefur skorað 11,1 stig, tekið 5,3 fráköst og gefið 3,1 stoðsendingar að meðaltali í leik á fjögurra ára löngum ferli í NBA.

Boston vann aðeins 25 leiki á síðasta tímabili og komst ekki í úrslitakeppnina.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×