Menning

Túlkunin er frjálsari núna en áður

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Fólk þarf bara að upplifa og lesa sjálft í myndmálið, segir Hulda Hlín Magnúsdóttir myndlistarkona.
Fólk þarf bara að upplifa og lesa sjálft í myndmálið, segir Hulda Hlín Magnúsdóttir myndlistarkona. Vísir/GVA
Litrík og stór abstraktmálverk setja sterkan svip á anddyri og kaffistofu Tjarnarbíós við Tjarnargötu 12. Þar er Hulda Hlín Magnúsdóttir myndlistarkona búin að koma fyrir nýjustu verkum sínum og ætlar að opna sýningu á þeim í dag.   

Stutt var fyrir Huldu Hlín að flytja myndirnar því vinnustofan hennar er í risi hússins við Tjarnargötu 40 sem tengist fjölskyldu hennar sterkt, hún er fjórði ættliðurinn sem þar hreiðrar um sig.

Stór olíu- eða akrýlmálverk í sterkum litasamsetningum eru aðalviðfangsefni Huldu Hlínar, að eigin sögn. Þó gerir hún alltaf  portrett með, en þau eru ekki á þessari sýningu. „Þau eru meiri hliðargrein hjá mér,“ upplýsir hún.

Hulda Hlín segir túlkunina frjálsari núna en áður. „Ég er búin að færa mig frá því hlutbundna eins og fígúrum, fjöllum eða öðru landslagi. Nú er formið orðið meira abstrakt þannig að fólk þarf bara að upplifa og lesa sjálft í myndmálið.

Titill sýningarinnar er Forum / Torg / Square og Hulda segir það vísa til hins rómverska torgs.  Hún lærði málaralist í Flórens, Feneyjum, Bologna og Róm en ólst upp í París, Kaupmannahöfn og Reykjavík, svo áhrifin koma víða að.

Hulda Hlín skrifar greinar í myndlistartímarit, hefur haldið námskeið í myndlist, til dæmis í tengslum við barnamenningarhátíð og verið með leiðsögn á listasöfnum, meðal annars fyrir frönsku- og ítölskumælandi gesti. 

Listakonan verður með opið í Tjarnarbíói til klukkan 23 í kvöld. Spurð hvort hún taki niður sýninguna strax á morgun svarar hún:

„Nei, sennilega fær hún að hanga uppi einhverja daga í viðbót þar sem dans- og leiklistarhátíðin er að hefjast og litríkar myndirnar falla ágætlega inn í þá stemningu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×