Innlent

Tugur skjálfta á síðasta sólarhring

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/auðunn níelsson
Tugur skjálfta á milli 4 og 5 af stærð hefur mælst við Bárðarbungu á síðasta sólarhring. Stærsti skjálftinn var rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Þá hafa tæplega 120 jarðskjálftar mælst frá hádegi í gær, heldur fleiri en sólarhringinn á undan. Fáeinir skjálftar hafa mælst í ganginum.

Hætt er við að gasmengun berist suður og suðaustur af eldstöðinni í dag og sömuleiðis á morgun, en norður af henni seinni partinn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×