Tugmilljónir á flótta um allan heim Þorgils Jónsson skrifar 20. júní 2013 08:15 Þessi unga stúlka flúði, ásamt fjölskyldu sinni, átökin í Sýrlandi og hafast þau nú við í flóttamannabúðum í Líbanon. NordicPhotos/AFP
Rúmlega 45 milljónir einstaklinga voru á vergangi í lok síðasta árs eftir að hafa hrakist burt frá heimilum sínum vegna stríðsátaka og annarra áfalla. Þetta kemur fram í árlegri úttekt Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNCHR) sem kom út í gær. Skýrslan byggir á gögnum frá ríkisstjórnum, frjálsum félagasamtökum og UNCHR en þar segir að í lok árs 2012 hafi 45,1 milljón manns verið á flótta í heiminum, samanborið við 42,5 milljónir í árslok 2011. Þar af voru 15,4 milljónir flóttamenn, 937.000 hælisleitendur og 28,8 milljónir á vergangi innan landamæra eigin heimalands.Stríðsátök eru meginástæða þess að fólk hrekst frá heimilum sínum en rúmlega helmingur flóttafólks kemur frá fimm löndum þar sem stríð hafa geisað, Afganistan, Sómalíu, Írak, Sýrlandi og Súdan. Auk þess hefur orðið vart við aukinn fjölda frá öðrum stríðshrjáðum löndum, til dæmis Malí og Kongó. Þessi tölfræði vekur ugg, sérstaklega ef litið er til síðasta árs, þar sem 7,6 milljónir manna flúðu heimkynni sín, þar af voru 1,1 milljón flóttamenn í öðru landi og 6,5 milljónir voru á flótta innan eigin heimalands. Þetta jafngildir því að einn einstaklingur flýi heimili sitt fjórðu hverja sekúndu. „Þetta eru verulega ógnvekjandi tölur,“ segir Antonio Guterres, æðsti yfirmaður UNCHR. „Þær endurspegla gríðarlega þjáningu fólks og þá erfiðleika sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir í viðleitni sinni til að koma í veg fyrir og leysa stríðsátök.“
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Sjá meira