Erlent

Tugir slösuðust í jarðskjálftum í Asíu

Höskuldur Kári Schram skrifar
Fólk flúði út á götur í Kína í gær vegna jarðskjálftans.
Fólk flúði út á götur í Kína í gær vegna jarðskjálftans. Vísir/Getty
Að minnsta kosti fjórir létu lífið og 54 slösuðust þegar jarðskjálfti upp á 5,9 stig reið yfir suðvesturhluta Kína í gær. Um 25 þúsund hús eyðilögðust í skjálftanum  og þúsundir þurftu að flýja heimili sín.

Jörð skalf einnig í Japan nokkrum klukkustundum síðar þegar jarðskjálfti upp á 6,7 stig reið yfir. Að minnsta kosti 39 slösuðust í skjálftanum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×