Innlent

Tugir milljóna innheimtar í bílastæðagjöld á Þingvöllum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Í sérlögum um þjóðgarðinn er heimild fyrir innheimtu þessara gjalda.
Í sérlögum um þjóðgarðinn er heimild fyrir innheimtu þessara gjalda. vísir/pjetur
Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðherra, mun á næstunni kynna í ríkisstjórn frumvarp um heimild sveitarfélaga til að leggja á bílastæðagjöld í dreifbýli.

„Þetta er nú orðið dagaspursmál heldur en hitt. Það er ekki búið að afgreiða þetta inn til ríkisstjórnar en þetta er í lokafrágangi,“ segir ráðherrann í samtali við Fréttablaðið.

Samkvæmt frumvarpinu munu sveitarfélög fá heimildir til að leggja á bílastæðagjöld og fá óskertar tekjur af þeim en yrði skylt að verja þeim í að byggja upp bílastæði og þjónustu sem tengist þeim.

Jón Gunnarssonvísir/pjetur
„Að menn byggi upp salernisaðstöðu eða einhverja aðstöðu fyrir þá sem eru að nýta sér þjónstuna,“ útskýrir Jón og bætir við að tekjurnar yrðu þá líka nýttar til að greiða fyrir gæslu.

Jón segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hafa haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og önnur ráðuneyti við samningu frumvarpsins. 

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir tvær meginlínur í stefnumörkun sambandsins varðandi tekjur sveitarfélaga af ferðaþjónustu. Gjaldtaka á bílastæðum sé önnur þeirra en hin sé hlutdeild í gistinátta­skattinum. 

„Það hefur verið mikið samráð við okkur. Ég veit ekki hver staðan er á málinu en við viljum fá þetta í gegn,“ segir Halldór.

Ólafur Örn Haraldsson
Hann býst við að frumvarpið geri ráð fyrir því að hvert sveitarfélag ráði fjárhæðinni sem innheimt er á hverjum stað fyrir sig.

Halldór kveðst ánægður með þingmálið. „Við mætum svo fyrir þingnefnd ef við höfum einhverjar athugasemdir í lokin,“ segir hann.

Á Þingvöllum hafa frá júní 2016 verið innheimt bílastæðagjöld á grundvelli sérlaga um þjóðgarðinn. 

Tekjur vegna þeirra námu um 70 milljónum króna í fyrra. Fimm hundruð krónur eru innheimtar fyrir einkabíl en hærra verð fyrir hópbíla og eru verðflokkarnir þrír. 

Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, er ánægður með hvernig til hefur tekist með gjaldtökuna.

„Þetta hefur gengið vel, ef maður á að segja það í einni setningu,“ segir hann. 

En ýmis úrlausnarefni hafi verið varðandi tæknilegar hliðar. Laga hafi þurft netsamband þar sem ekki er ljósleiðari á Þingvöllum. Rafkerfið þoldi nýja fyrirkomulagið ekki heldur. 

Ólafur þjóðgarðsvörðu segir að tekjurnar fari í endurbætur á aðstöðunni og aðbúnaði á bílastæðum, rekstur á kerfunum sem til þarf, launagreiðslur vegna gæslu á bílastæðunum og fleira. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×