Tugir milljarða í jarðgöng næstu árin 20. júní 2012 05:00 Alls fara 1,8 milljarðar króna í framkvæmdir við Landeyjahöfn á fjögurra ára samgönguáætlun. mynd/óskar p. friðriksson
Alþingi gerði ýmsar breytingar á samgönguáætlun sem samþykkt var í gær. Norðfjarðargöngum verður flýtt og fé sett í rannsóknir á Seyðisfjarðargöngum. 2,3 milljarðar fara í nýjan Herjólf og Landeyjahöfn. Bora á fjölda jarðganga. Alþingismenn samþykktu fjögurra ára og tólf ára samgönguáætlanir í gær. Þær voru samþykktar samhljóða, 43 þingmenn greiddu þeim atkvæði sitt. Ýmsar breytingar voru gerðar á frumvörpum ráðherra og komu flestar frá meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar. Þá var samþykkt breytingartillaga átta þingmanna Norðausturkjördæmis um að miða rannsóknum og undirbúningi Seyðisfjarðarganga þannig að hægt sé að hefja framkvæmdir við þau samhliða Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum. Framkvæmdum við Norðfjarðargöng verður flýtt og munu þær hefjast á næsta ári. Settir verða 1,2 milljarðar í verkefnið þá og 2,5 árið 2014. Það verður því mikið um gangaboranir á næstunni, því Alþingi samþykkti nýverið heimild til fjármálaráðherra um lán vegna Vaðlaheiðarganga, en þau göng verða tekin út fyrir samgönguáætlun. Við þetta bætist að í langtímaáætluninni er gert ráð fyrir að Norðfjarðargöngum verði lokið á öðru fjögurra ára tímabili áætlunarinnar, með alls 6,8 milljarða króna framlagi. Í framhaldi af því verða lagðir sex milljarðar króna í önnur jarðgöng. Þá verður framkvæmdum við Dýrafjarðargöng flýtt og þeim lokið 2018. Fé til jarðganga næstu árin hleypur því á tugum milljarða. Á meðal breytinga sem nefndarmeirihlutinn lagði til var að verja 2,3 milljörðum króna til uppbyggingar nýs Herjólfs og til framkvæmda við Landeyjahöfn, einum milljarði árið 2013 og 1,3 milljörðum árið 2014. Af þessu fé er 440 milljónum króna varið í hlutafjárframlag til hlutafélags um kaup á nýrri ferju með þátttöku Vestmannaeyjabæjar, 60 milljónum króna til þarfagreiningar, hönnunar og tankprófana á nýrri ferju og 1.800 milljónum í framkvæmdir við Landeyjahöfn. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Sjá meira