Viðskipti innlent

Tugir milljarða í húfi í Hæstarétti í dag

ingvar haraldsson skrifar
Mál Atlantsolíu gæti orðið fordæmisgefandi fyrir fjölmörg fyrirtæki.
Mál Atlantsolíu gæti orðið fordæmisgefandi fyrir fjölmörg fyrirtæki. Vísir/Hari
Mál Atlantsolíu gegn Landsbankanum vegna gengisláns verður endurflutt fyrir Hæstarétti klukkan eitt í dag. Niðurstaða málsins gæti haft í för með sér tuga milljarða útgjöld fyrir íslensk fyrirtæki samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda.



Hagar töpuðu sambærilegu máli


Hæstiréttur dæmdi Arion banka í vil í sambærilegu máli gegn Högum árið 2013. Í tilkynningunni kemur fram að Hæstiréttur hafi talið að hægt væri að krefja Haga um viðbótarvexti af gengisláni þar sem ekki hefði verið nægur aðstöðumunur milli Haga og bankans, meðal annars vegna stærðar fyrirtækisins og sérfræðiþekkingar Þess vegna mætti bankinn krefja fyrirtækið um vexti sem næmu mismuninum á allt að 21% seðlabankavöxtum annars vegar og samningsvöxtum hins

„Bankarnir hafa sumir hverjir síðan túlkað þennan dóm með afar hæpnum hætti þannig að hann ætti við um öll fyrirtæki yfir tilteknum stærðarmörkum, burtséð frá eðli starfseminnar. Dómar hafa fallið í héraðsdómi sem styðja þann skilning. Þeir hafa verið mjög umdeildir. Fá fyrirtæki kannast við annað en að mikill aðstöðumunur sé á milli þeirra og fjármálafyrirtækja, enda miðar regluverk um fjármálafyrirtæki í raun að því að sá aðstöðumunur sé fyrir hendi,“ segir í tilkynningunni.

Málið sagt fordæmsgefandi

Hæstiréttur hafi hins vegar ekki fengið sambærilegt mál til meðferðar eftir að dómur féll í Hagamálinu.

Mál Atlantsolíu gegn Landsbankanum snýr að því hvort nógu lítill aðstöðumunur hafi verið á milli fyrirtækisins og bankans til að bankinn geti krafið Atlantsolíu um viðbótarvexti af láninu. „Málið var flutt fyrir Hæstarétti 10. september en er nú endurflutt að beiðni réttarins, sem hefur fjölgað dómurum úr þremur í fimm.“

Í tilkynningunni kemur fram að mál Atlantsolíu verði fordæmisgefandi fyrir stöðu fjölmargra fyrirtækja á Íslandi. „Verði Atlantsolía talið of stórt fyrirtæki til að það fái viðbótarvextina endurgreidda getur það haft í för með sér tuga milljarða útgjöld fyrir íslensk fyrirtæki sem að mati bankanna eru nógu stór til að teljast ekki í aðstöðumun gagnvart þeim. Forsvarsmenn fjölda fyrirtækja bíða þess í ofvæni að sjá hvar og hvernig Hæstiréttur dragi línuna um skilgreiningu á fyrirtækjum sem fullnaðarkvittanareglan gildir ekki um.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×