Erlent

Tugir létu lífið í flóttamannabúðum

Guðsteinn Bjarnason og Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifa
Íbúar höfuðborgarinnar Sana efndu til mótmæla í gær gegn loftárásum Sádi-Araba.
Íbúar höfuðborgarinnar Sana efndu til mótmæla í gær gegn loftárásum Sádi-Araba. fréttablaðið/EPA
Að minnsta kosti 45 almennir borgarar fórust í flóttamannabúðum Sameinuðu þjóðanna í Jemen í gær þegar loftárás var gerð á búðirnar. Tugir til viðbótar særðust, þar af 25 alvarlega.

Sádi-Arabía hefur haft forystu um loftárásir á svæði, sem uppreisnarmenn húta hafa haft á valdi sínu. Fleiri nágrannaríki hafa tekið þátt í loftárásunum, sem gerðar hafa verið daglega síðan á fimmtudag.

Óttast er að loftárásirnar geti jafnvel orðið upphafið að styrjöld milli Sádi-Arabíu og Írans, þar sem Íranar hafa veitt uppreisnarhópi húta stuðning gegn stjórninni í Sana. Hútar hafa einnig haft stuðning frá hermönnum hliðhollum Ali Abdúllah Saleh, fyrrverandi forseta landsins, en hann hrökklaðist frá völdum árið 2012 eftir hatrömm mótmæli. Hann hefur kallað eftir vopnahléi á milli stríðandi fylkinga. Átök hafa stigmagnast á svæðinu síðustu daga og svo virðist sem hútar sæki fast í átt að landamærum Sádi-Arabíu.

Hart var barist í og við hafnarborgina Aden í Jemen í fyrradag og í fyrrinótt þar sem uppreisnarsveitir húta reyndu að ráðast inn í borgina norðanverða.

Al Mazrak-flóttamannabúðirnar eru í Hajja-héraði. Þær hafa síðan árið 2009 hýst Jemena á flótta vegna átaka á milli húta og stjórnarinnar í Sana.

Fjöldi manna hefur hrakist á vergang vegna árásanna og að sögn Paolo Marco, talsmanns samtakanna Lækna án landamæra sem hafa séð þar um heilbrigðisþjónustu, bættust um fimm hundruð fjölskyldur í hóp flóttamanna síðustu tvo daga. „Fólkið í Al Mazraq-flóttamannabúðunum hefur búið við skelfilegar aðstæður síðan 2009 og nú þarf það að þola afleiðingar loftárásar,“ sagði Paolo í viðtali við Aljazeera-fréttastöðina.

Myndskeið hafa sést af vettvangi og sýna þau lík barna og kvenna. Óttast er að straumur flóttamanna muni áfram aukast haldi loftárásirnar áfram.

Erlendir ríkisborgarar flýja Jemen, þúsundir Pakistana og Indverja voru fluttar til síns heima í gær og á þriðja hundrað starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og sendiráða voru flutt úr landi á laugardaginn var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×