Erlent

Tugir flóttamanna köfnuðu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Lögreglan rannsakar flutningabifreiðina, sem er með ungverskar númeraplötur en merkt slóvakísku kjúklingafyrirtæki.
Lögreglan rannsakar flutningabifreiðina, sem er með ungverskar númeraplötur en merkt slóvakísku kjúklingafyrirtæki. Vísir/AP
Allt að fimmtíu lík fundust í vörubifreið á þjóðvegi skammt frá Vínarborg í gær. Talið er að hinir látnu hafi flestir verið flóttamenn frá Sýrlandi. Þeir hafi kafnað.

Bifreiðin hafði líklega staðið í vegarkantinum frá því á miðvikudag. Í gærmorgun tóku starfsmenn austurrísku vegagerðarinnar, sem voru að slá gras, eftir því að vökvi var farinn að leka úr bílnum. Þeir gerðu lögreglu viðvart.

Bifreiðin er með kælibúnaði og merkt kjúklingafyrirtæki í Slóvakíu, sem segist hafa selt þessa bifreið og tólf aðrar til Ungverjalands á síðasta ári. Kaupendunum sé ekki skylt að taka merkingarnar af.

Austurríska lögreglan segir að allt kapp sé lagt á að hafa uppi á ökumanni bifreiðarinnar og þeim sem standa á bak við þennan fólksflutning.

Á þriðjudag voru þrír menn handteknir við landamæri Austurríkis fyrir að reyna að smygla flóttafólki yfir til landsins. Ökumaðurinn hafði stöðvað bíl sinn á þjóðveginum og sagt flóttafólkinu að fara út. Alls voru 34 manns í þeim bíl og hefur fólkið sagt lögreglu að mikil þrengsli hafi verið í bílnum og fólk átt erfitt með að anda.

„Þeir sem tala um harmleik í þessu sambandi, eru hræsnarar,“ hefur austurríska fréttasíðan Kurier eftir Heinz Patzelt, framkvæmdastjóra Amnesty International í Austurríki. „Þetta var fyrirsjáanlegt og hryllilegt fylgitjón og allir þeir sem í örvæntingu sinni halda fast í Dyflinnarkerfið, sem virkar ekki lengur, hafa af gáleysi sínu látið það viðgangast.“

Angela Merkel Þýskalandskanslari, sem var stödd í Austurríki á leiðtogafundi Vestur-Balkanskagaríkja, sagðist miður sín vegna þessa máls: „Þetta brýnir okkur til að takast hratt á við fólksflutninga í anda Evrópu, það er að segja í anda samstöðu, og finna lausnir.“

Hún sagði Evrópuríkin vera auðug og hafa alla getu til þess að ráða við þessi mál: „Heimsbyggðin fylgist með okkur,“ sagði hún.

Á fundinum gagnrýndu leiðtogar Balkanskagaríkja, ekki síst ráðamenn í Serbíu og Makedóníu, hve viðbrögð Evrópusambandsins við flóttamannastraumnum hafi verið lítil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×