Erlent

Tugir fallnir í árás Bandaríkjahers á stöðvar ISIS í Líbíu

Atli Ísleifsson skrifar
Noureddine Chouchane er sagður hafa skipulagt hryðjuverkaárásina á Bardo-safnið í Túnisborg á síðasta ári þar sem nítján féllu.
Noureddine Chouchane er sagður hafa skipulagt hryðjuverkaárásina á Bardo-safnið í Túnisborg á síðasta ári þar sem nítján féllu. Mynd/Lögregla í Túnis
Að minnsta kosti 38 manns hafa fallið í loftárásum Bandaríkjahers á stöðvar uppreisnarmanna ISIS í Líbíu í dag. Loftárásirnar voru gerðar á búðir ISIS í Sabratha, um sjötíu kílómetrum vestur af Trípolí.

Talsmaður Bandaríkjahers segir líklegt að túníski hryðjuverkamaðurinn, Noureddine Chouchane, hafi fallið í árásunum.

Chouchane hefur verið bendlaður við tvær mannskæðar hryðjuverkaárásir sem gerðar voru í Túnis á síðasta ári.

Í frétt BBC um málið segir að ISIS hafi verið virkir í Líbíu í rúmt ár og áætlar Bandaríkjaher að vígamenn samtakanna þar séu um sex þúsund talsins.

Ófremdarástand hefur ríkt í Líbíu síðustu ár, en einræðisherranum Muammar Gaddafi var steypt af stóli og hann drepinn árið 2011.

Bandarísku orrustuþoturnar tóku á loft frá breskri herstöð og hefur varnarmálaráðherra Bretlands, Michael Fallon, fagnað árásinni en tekur fram að breskar orrustuþotur hafi ekki verið notaðar.

Borgarstjóri Sabratha segir að 41 maður hafi fallið í árásinni, fyrst og fremst Túnismenn.

Ash Carter, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjaher muni halda loftárásum sínum í Líbíu áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×